Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9254
Lokaverkefnið fjallar um möguleika barna til að móta umhverfi sitt. Markmið verkefnisins er að útbúa leiðbeiningar fyrir leikskólakennara, byggt á fræðilegum grunni, sem nýtast í daglegu starfi leikskóla til að efla lýðræðisvitund barna. Leitað er svara við grundvallarspurningum sem eru undirliggjandi í hverjum kafla, er varða viðhorf til barna og þróun lýðræðislegs leikskólastarfs. Rýnt er í rannsóknir og aðferðir sem hefur verið beitt til að bæta möguleika leikskólabarna til aukinna áhrifa og mótunar umhverfis síns, þar má helst nefna Reggio Emilia og fjallað er um hlutverk leikskólakennarans í eflingu lýðræðislegrar þátttöku barna. Í seinni hluta verkefnisins er unnið út frá þeim grunni sem byggður var í fræðilega hlutanum og gefnar eru leiðbeiningar til hjálpar leikskólakennurum að styrkja lýðræðislega þátttöku barna í leikskólastarfi. Helsta niðurstaða verkefnisins er staðfesting á mikilvægi þess að börn fái að hafa áhrif á og móta umhverfi sitt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð Aldísar og Salbjargar 2011.pdf | 538.54 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |