is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9271

Titill: 
  • Kúluvarparar : fræðileg umfjöllun um vöðvasamsetningu og tillögur að styrktaræfingum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið verkefnisins var að rannsaka hvaða þættir gætu útskýrt vöðvasamsetningu kúluvarpara, og hvers konar vöðvasamsetning gæti stuðlað að góðum árangri í kúluvarpi. Settar voru fram tillögur að styrktaræfingum sem gætu stuðlað að slíkri vöðvasamsetningu. Verkefnið er rannsóknarritgerð og voru vísindalegar greinar notaðar við skrif á verkefninu, einnig var stuðst við fræðibækur. Helstu niðurstöður voru þær að líklega eru tvær tegundir af vöðvasamsetningu sem gætu stuðlað að góðum árangri í kúluvarpi. Önnur samsetningin er mikill hlutfallslegur fjöldi (HFJ) af vöðvafrumum af tegund II, stórt hlutfallslegt þversniðsflatarmál (HÞSF) af vöðvafrumum af tegund II og tiltölulega stórar vöðvafrumur af tegund II. Hin samsetningin, sem er hugsanlega betri, er að vera með meðal HFJ af vöðvafrumum af tegund II, stórt HÞSF vöðvafruma af tegund II og mjög stórar vöðvafrumur af tegund II. Sambland af þjálfun og genum hefur hugsanlega mest áhrif á vöðvasamsetningu kúluvarpara. Styrktarþjálfun sem inniheldur fá sett og fáar endurtekningar en mikla ákefð getur stækkað HÞSF vöðvafruma af tegund II meira en vöðvafruma af tegund I.

Athugasemdir: 
  • Lokaverkefni til B.Sc. prófs í Íþrótta- og heilsufræði
Samþykkt: 
  • 20.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9271


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Vodvasamsetningogkuluvarplokaskil.pdf240.86 kBLokaðurHeildartextiPDF
kapa.pdf49.34 kBOpinnPDFSkoða/Opna
baksida titilsidu.pdf23.32 kBOpinnPDFSkoða/Opna