is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9307

Titill: 
  • Samanburðarrannsókn á knattspyrnuþjálfun tólf ára drengja í Noregi og á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð fjalla ég um knattspyrnuumhverfi yngri flokka í Noregi og á Íslandi þar sem ég einblíni á þjálfun 12 ára drengja. Markmið ritgerðarinnar er að fá heildstæða sýn á knattspyrnuumhverfi yngri flokka í löndunum og sjá hvort það sé munur á milli landanna og hvar sá munur liggi helst. Ég setti af stað rannsókn þar sem ég sendi spurningalista með 51 spurningu á þjálfara 12 ára drengja í löndunum tveimur.Spurt var um atriði sem snúa að þjálfurunum, menntun þeirra, vinnuumhverfi og áherslum í þjálfun, einnig leitaði ég svara við hvernig æfingaaðstaða félaganna er og hvernig keppnisfyrirkomulagi er háttað. Ég mun fjalla ítarlega um Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) og Knattspyrnusamband Noregs (NFF). Þar á meðal mun ég fara yfir markmið og stefnur sambandanna fyrir yngri flokka auk þess að skoða þjálfaranámskeið sambandanna og almennar knattspyrnuaðstæður í löndunum.
    Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að KSÍ og NFF eru með svipuð markmið og stefnur en það eru nokkur atriði sem sýna greinilegan mun á knattspyrnuumhverfi landanna. Í stuttu máli eru niðurstöðurnar þær að félög á Íslandi leggja meira upp úr keppni sem endurspeglast m.a. í verðlaunum á mótum og getuskiptingu í lið, þjálfarar íslenskra félaga fá laun fyrir þjálfunina á meðan það þekkist varla hjá þjálfurum í norskri barnaknattspyrnu. Knattspyrnusamböndin eru bæði með markmið um menntun þjálfara, en niðurstöðurnar leiða í ljós að íslenskir þjálfarar í rannsókninni eru í meiri mæli menntaðir til að þjálfa knattspyrnu en kollegar þeirra í Noregi.

Samþykkt: 
  • 21.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9307


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
LokaritgerdOrri.pdf1.28 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna