Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9363
Verkefni þetta er unnið í tengslum við lokaverkefni til B.Ed.-gráðu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2011. Verkefnið skiptist í greinargerð og handbók. Hlutverk greinargerðarinnar er að styðja og færa rök fyrir því efni sem fram kemur í handbókinni. Byggt er á hugmyndafræði og kenningum fræðimanna sem meðal annars leggja áherslu á náttúruupplifun og það nám sem í henni felst. Náttúruupplifun er rauði þráðurinn í öllu verkefninu en það beinist að því hvernig hægt er að nálgast fugla sem viðfangsefni með börnum á leikskólaaldri. Handbókin er námsefni fyrir yngsta skólastigið og leiðarvísir fyrir leikskólakennara. Þar er fjallað almennt um fugla í umhverfi leikskóla, fóðrun og vettvangsathuganir og sagt frá völdum tegundum, tólf talsins. Stungið er upp á leikjum, sagðar sögur og bent á ýmis gögn, kveðskap og söngva sem leikskólakennarar geta fært sér í nyt. Megintilgangur verksins er að kveikja áhuga á fuglum og náttúruupplifunum í starfi með leikskólabörnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð með handbók.pdf | 347.89 kB | Lokaður | Greinargerð | ||
Handbokin Fljúgum hærra.pdf | 2 MB | Lokaður | Handbók |