Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/939
Verkefni þetta er lögð fram sem lokaverefni til B.ed gráðu í leikskólafræðum. Í þessu verki er velt upp mikilvægi tengslamyndun barna á leikskólaaldri í ljósi kenninga og áhrif hennar á geðheilsu þeirra. Í framhaldi af því er sett fram tillaga að leikskólastarfi sem styrkir tengslamyndun. Höfundur hefur um árabil starfað í leikskólanum Arnarsmára og skoðar skipulag hans með þetta markmið í huga. Í fyrri hluta verksins er gerð grein fyrir þeim kenningum sem lagðar eru til grundvallar. Þar er sagt frá kenningum John Bowlby og þeim þáttum sem hann leggur áherslu á. Gerð er grein fyrir rannsóknum Mary Ainsworth og tilraunum Harry Harlows. Fram kemur í ritgerðinni hver er kjörtími geðtengsla og hvernig tengsl á milli barna og barna, kennara og barna, og foreldris fer fram. Í seinni hluta er sagt frá starfinu í leikskólanum Arnarsmára og dagskipulaginu þar. Að lokum eru settar fram tillögur um hvernig nýta megi hugmyndir um tengslamyndun í leikskólastarfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
tengslamyndun.pdf | 330.45 kB | Lokaður | Tengslamyndun og leikskólastarf - heild | ||
tengslamyndun-e.pdf | 57.54 kB | Opinn | Tengslamyndun og leikskólastarf - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
tengslamyndun-h.pdf | 113.77 kB | Opinn | Tengslamyndun og leikskólastarf - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
tengslamyndun-u.pdf | 64.79 kB | Opinn | Tengslamyndun og leikskólastarf - útdráttur | Skoða/Opna |