is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9445

Titill: 
  • Leikur, flæði og samskipti : athugun í leikskóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni verður fjallað um leik barna, flæði og samskipti. Gerð verður grein fyrir niðurstöðum eigindlegrar athugunar á flæði og samskiptum í leik barna. Athugunin fór fram í leikskóla og var markmið hennar að skoða hvort flæði sæist í leikskólastarfi. Rannsóknarspurningarnar eru tvær: Hvernig birtist flæði í leik barna og hvaða þættir í samskiptum styðja við flæði?
    Helstu niðurstöður eru að flæði á sér stað þegar börn eru að leik og birtist það í einbeitingu barnanna, áhuga þeirra og hvernig þau gleyma stað og stund og gefa sig á vald leiksins. Einnig mátti sjá að börnin vörðust áreiti í leiknum og héldu einbeitingu þrátt fyrir utanaðkomandi truflun. Samskipti barnanna í leik eru bæði yrt og óyrt, þau nota samskipti til þess að skipuleggja leik sinn og halda honum gangandi. Samskipti sem einkenndust af leikgleði studdu börnin í flæði en þau samskipti sem einkenndust af átökum komu í veg fyrir að börnin héldu eða næðu flæði ástandi.

Samþykkt: 
  • 23.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9445


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.ed ritgerð Margrét Halldóra.pdf258.77 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna