is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9466

Titill: 
  • Foreldrar með þroskahömlun : hvað segja rannsóknir um aðstoð við foreldra með þroskahömlun?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í lokaverkefni þessu til B.A. prófs í þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands, kem ég til með að skoða hvað rannsóknir hafa að segja um þá aðstoð er foreldrum með þroskahömlun er veitt, og hvernig hægt er að bæta þá þjónustu.
    Í upphafi fer ég aftur í tímann og skoða þau viðhorf og áherslur sem endurspegla tíðarandann sem þá ríkti. Tími þar sem ófrjósemisaðgerðir voru ekki óalgengar, án vitundar þess er í aðgerðina fór. Tími þar sem flestir töldu sig vita að fatlaðir og aðrir „óæskilegir“ þegnar þjóðfélagsins fjölguðu sér hraðar en aðrir þjóðfélagsþegnar. Áherslur hafa breyst í gegnum tíðina. Mannréttindi, Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, lög og reglugerðir, beina nú sjónum að auknum réttindum fatlaðs fólks, frelsi til eðlilegs lífs á eigin forsendum og frelsis til að giftast og eignast fjölskyldu. Þó sýna rannsóknir að viðhorf starfsmanna geta haft áhrif á þá aðstoð sem þeir veita foreldrum með þroskahömlun inni á þeirra heimili. Viðhorf foreldranna til félagsþjónustunnar litast af hræðslu þeirra á að missa börnin. Engir foreldrar þurfa að sanna sig eins mikið, og eru dæmdir eins hart‚ eins og foreldrar með þroskahömlun.

Samþykkt: 
  • 24.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9466


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Helga BA verkefni.pdf524.58 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna