Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9501
Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Ed. prófs í grunnskólakennarafræðum við Háskóla Íslands og fjallar það um mikilvægi samstarfsins milli skólastiganna tveggja, þ.e. leik- og grunnskóla þegar börn hefja grunnskólagöngu sína. Verkefnið byggir á greinagerð ásamt hugmynd minni um upplýsingamöppuna Ljómu sem fylgja á börnum úr leikskóla yfir í grunnskóla. Það er því í hlutverki starfsfólks leikskólanna að sjá til þess að gæða möppuna þeim upplýsingum er hún væntir. Einnig koma foreldrar og forráðamenn barnanna að því verki. Upplýsingarnar sem mappan hefur að geyma á að koma verðandi kennurum barnanna til góða til þess að mæta þeim á þeirra forsendum. Það er ekki síður hagur barnanna að mappan Ljóma fylgi þeim á næsta skólastig, því með henni má fylgjast vel með þroska og framgangi nemenda auk þess sem þeim er mætt út frá getu, færni og áhuga þeirra sjálfra. Í möppunni Ljómu er aðeins að finna jákvæðar upplýsingar sem gagnast vel að gera nám barnanna sem farsælast.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ljómandi lærisveinar á leið í skóla.pdf | 444.16 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna | |
Mappan_lokaverkefni.pdf | 165.54 kB | Opinn | Skoða/Opna |