is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9544

Titill: 
  • Sorgarviðbrögð barna við fráfall foreldris : fræðileg umfjöllun og hagnýtar upplýsingar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A. prófs í uppeldis- og menntunarfræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er fjallað um sorgarferli barna sem verða fyrir þeirri reynslu, í leikskóla eða yngstu bekkjum grunnskóla, að missa foreldri sitt.
    Sjónum er beint að viðbrögðum ungra barna við dauðanum og sorgarviðbrögðum þeirra. Börn á leikskóla og í yngstu bekkjum í grunnskólum landsins skipta þúsundum og því alltaf einhverjir á ári hverju sem verða fyrir því áfalli að missa foreldri sitt. Tekið var meðal annars viðtal við leikskólastjórnanda auk grunnskólakennara sem starfað hafa í nánum tengslum við börn sem orðið hafa fyrir foreldramissi.
    Fræðsla er áhrifarík leið og mikilvægt er að leikskóla- og grunnskólakennarar hafi greiðan aðgang að upplýsandi efni varðandi foreldramissi barna. Að þeir hafi tækifæri og stuðning til þess að fræðast um viðbrögð og það ferli sem barnið gengur í gegnum, í þeim tilgangi að hlúa og hjálpa því að takast á við tilfinningar sínar á sem farsælastan hátt.

Samþykkt: 
  • 28.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9544


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sorgarferli barna við foreldra missi, lokaskil.pdf268.23 kBLokaðurHeildartextiPDF
titilsíða lokaritgerð.pdf63.93 kBOpinnTitilsíðaPDFSkoða/Opna