is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9562

Titill: 
  • „Eftir hverju erum við að vinna?“ : hugmyndir starfsfólks í frítímastarfi barna og unglinga um kynjaskipt klúbbastarf
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis er að skoða viðhorf starfsfólks í frítímastarfi barna og unglinga til kynjaskiptrar starfsemi. Rannsóknin byggir á fjórum viðtölum við starfsfólk í félagsmiðstöðvum og á frístundaheimilum sem tekin voru í marsmánuði 2011. Viðtölin eru orðræðugreind út frá Faucoultískri orðræðugreiningu og sett í samhengi við hugtakaramma Pierre Bourdieu, sögulega þróun skipulagðrar tómstundaiðkunnar og femínískar kenningar. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvernig tómstundastarf barna og unglinga er vettvangur táknbundins ofbeldis. Helstu niðurstöður eru að orðræða viðmælenda er mettuð af tvíhyggjuhugmyndum, gagnkynhneigðu forræði og staðalmyndum um stelpur og stráka. Starfsfólk virðist meðvitað um skaðsemi staðalmynda en ómeðvitað um eigin þátt í framleiðslu á þeim og hefur lítil úrræði til að spyrna gegn mótun þeirra og viðhaldi. Einstaklingshyggja og hugmyndir um lýðræði gefa til kynna undirliggjandi eðlishyggju og ýta undir endurframleiðslu á ríkjandi valdatengslum í samfélaginu. Ýmislegt bendir til að stelpuklúbbar þjóni hlutverki öruggs rýmis eins og þau birtast í skrifum femínista. Nauðsynlegt er að efla menntun og vitund um kynjafræði á meðal starfsfólks í frítímastarfi svo kynjuðum staðalmyndum sé veitt mótspyrna.

Athugasemdir: 
  • tómstunda- og félagsmálafræði, kynjafræði, félagsmiðstöð, frístundaheimili, frítímastarf, barnastarf, femínismi
Samþykkt: 
  • 28.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9562


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA 12-5.pdf339.81 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
kápa 11.maí.pdf191.72 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna