Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9569
Í þessari greinagerð fjalla ég um lokaverkefni mitt til B.ed. gráðu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Lokaverkefnið er myndband en í því eru settar á svið þrjár klípusögur um einelti og samhliða því er kennsluverkefni með hugmyndum um úrvinnslu myndbandsins í kennslu. Jafnframt er fjallað um hugtakið einelti, hvernig það er skilgreint, birtingarmyndir þess og hverjar afleiðingar þess geta verið. Eineltisáætlun Dan Olweus er kynnt og hvernig hægt er að nýta hana til að sporna gegn einelti. Einnig er rætt um aðrar leiðir sem hægt er að fara til að vinna gegn einelti.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskil B.ed 28 apríl 2011.pdf | 727.24 kB | Opinn | Skoða/Opna |