is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9584

Titill: 
  • Að leyfa hæfileikum að blómstra : hvað þarf til að fara alla leið?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Þetta verkefni fjallar um svonefnd bráðger börn. Meginspurningar mínar eru eftirfarandi: Hvað þarf til að hæfileikar bráðgerra barna fái að blómstra? Hvaða þættir hafa mest áhrif? Hvaða úrræði eru til staðar í skólakerfinu og hvaða kennsluaðferðir henta þessum hópi sérstaklega?
    Hópur bráðgerra barna er skilgreindur með hliðsjón af lista yfir einkenni bráðgerra barna sem starfshópur Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur setti fram í skýrslu árið 2004. Skoðuð eru úrræði í skólakerfinu og í framhaldi af því kennsluaðferðir eins og lausnaleitarnám og rannsóknarnálgun. Rætt er um einstaklingsmiðun sem úrræði fyrir bráðger börn og kosti þess að notast við opin verkefni (open ended tasks) til að laða fram hæfileika og gera kröfur.
    Í framhaldi af þessu eru skoðaðir áhrifaþættir á velgengni hjá þessum börnum. Rætt er um mikilvægi jákvæðra væntinga, mentorhlutverk kennarans og hversu mikilvægt það er að geta séð hvað efnilegur nemandi gæti afrekað með réttum stuðningi.
    Niðurstaðan er að þar sem jákvæð sjálfsmynd er svo mikilvæg fyrir velgengni bráðgerra barna skiptir hæfni kennarans mestu máli fyrir hvort og hvernig þessi börn fái að nýta hæfileika sína innan skólans.

Samþykkt: 
  • 29.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9584


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
aðleyfahæfileikum.pdf301.7 kBOpinnPDFSkoða/Opna