is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9601

Titill: 
  • Heimanám grunnskólabarna : árangur og viðhorf
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni ritgerðarinnar er heimanám og meginmál hennar skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er fjallað um efnið út frá fræðilegum heimildum, hugtakið er skilgreint og fjallað er um markmið og árangur heimanáms. Saga heimanáms er jafnframt rakin í stuttu máli. Rannsóknum á heimanámi eru gerð skil, fjallað er um þátttöku foreldra í heimanámi og samskipti heimila og skóla.
    Mjög skiptar skoðanir eru á því meðal fræðimanna hvort heimanám beri árangur og hvaða árangurs megi helst vænta. Sumir líta svo á að heimanám sé nauðsynlegur þáttur í því að bæta námsárangur á meðan aðrir segja heimanámið tilgangslaust. Almenn skoðun virðist þó vera sú að ef rétt er staðið að heimanámi, þá skili það vissum árangri. Kennarar þurfa að vega og meta magn og eðli heimanáms út frá hverjum einstaklingi þannig að það hæfi getu hans og markmiðum.
    Í seinni hluta ritgerðarinnar er umfjöllun um rannsókn sem unnin var í samvinnu við tvo grunnskóla og niðurstöður hennar kynntar. Gerð var könnun á viðhorfum foreldra og barna til heimanáms, en þátttakendur voru foreldrar og nemendur á miðstigi. Notast var við megindlega aðferð og könnunin var send til þátttakenda rafrænt. Helstu niðurstöður eru þær að almennt ríkir jákvætt viðhorf gagnvart heimanámi. Foreldrar álíta heimanám mikilvægan þátt í skólastarfinu og telja það tengja þá við nám barna sinna. Flestir foreldrar telja sig vera í góðu samstarfi við skólana og að heimanámið hæfi yfirleitt börnunum. Nemendurnir eru einnig fremur jákvæðir í garð heimanámsins og flestum finnst það fremur áhugavert. Mörgum nemendum þykir heimanámið þó vera of mikið, öfugt við skoðun margra foreldra sem þykir heimanámið vera of lítið.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 29.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9601


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Heimanám grunnskólabarna.pdf422.04 kBLokaðurPDF