Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/961
Verkefnið er mappa sem inniheldur kennsluefni á dönsku fyrir nemendur á yngsta stigi grunnskóla og er þá miðað við 2. bekk. Í möppunni er að finna verkefnahefti með kennsluleiðbeiningum, leikjahefti, spil, leikbrúður og geisladisk með hlustunarefni. Markmiðið með gerð þessa verkefnis er að það nýtist kennurum til dönskukennslu á yngsta stigi.
Með verkefninu fylgir greinargerð þar sem markmið verkefnisins kemur fram, rökstuðningur fyrir vali verkefnis, fræðilegur hluti og útskýrt hverjum verkið mun nýtast og hvernig það tengist kennslu.
Í fræðilega hlutanum er farið yfir heimildir um hvernig best sé að kenna tungumál á yngsta stigi grunnskóla, kenningar nokkurra fræðimanna skoðaðar og almennt farið í færniþættina fjóra.
Niðurstöður greinargerðarinnar sýna að mikið hefur verið skrifað um byrjendakennslu tungumála. Flestir eru sammála um að tungumál lærist best hjá ungum börnum í gegnum leik og söng og með það að sjónarmiði er verkefnið unnið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forsida verkefnahefti.pdf | 32.03 kB | Opinn | Forsíða verkefnaheftis | Skoða/Opna | |
Greinargerd.pdf | 269.37 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Kennsluleidbeiningar.pdf | 231.89 kB | Opinn | Kennsluleiðbeiningar | Skoða/Opna | |
Leikjahefti lokaverkefni.pdf | 234.68 kB | Opinn | Leikjahefti | Skoða/Opna | |
samstaeduspil.pdf | 38.14 kB | Opinn | Samstæðuspil | Skoða/Opna | |
SPILASPJ.pdf | 19.28 kB | Opinn | Spilaspjöld | Skoða/Opna | |
SPILASPJ_fjolublar.pdf | 16.74 kB | Opinn | Spilaspjöld fjólublá | Skoða/Opna | |
SPILASPJ_graenn.pdf | 18.29 kB | Lokaður | Spilaspjöld græn | ||
SPILASPJ_raudur.pdf | 17.82 kB | Opinn | Spilaspjöld rauð | Skoða/Opna | |
Teningaspil lokaverkefni.pdf | 21.07 kB | Opinn | Teningaspil | Skoða/Opna | |
titilsida lokaverkefni.pdf | 20.71 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna | |
Verkefnahefti.pdf | 991.09 kB | Opinn | Verkefnahefti | Skoða/Opna |