Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9683
Þetta lokaverkefni er handbók fyrir kennara yngri barna í lestri. Byrjað er á að gera grein fyrir fræðunum á bak við lestur, lestrarnámi barna og einstaklingsmiðaðri lestrarkennslu. Þá er fjallað um gagnreynda kennsluaðferð sem þjálfar nemendur markvisst í undirstöðuþáttum læsis. Byggt er á kennsluhugmyndum Debbie Diller og fjallar um læsissvæði og kennslu í smáhópum. Aðferðin er viðbót við almenna bekkjarkennslu og hægt er að nýta hana til að mæta hverjum nemanda innan bekkjarins. Rannsóknir hafa sýnt fram á að aðferðin getur dregið úr þörf fyrir sérkennslu. Í verkefninu er sagt frá hugmyndum að læsissvæðum og verkefnum tengdum þeim. Kynntar eru hugmyndir af kennslu í smáhópum og þeirri hugmyndafræði sem að baki liggur. Lokaverkefninu fylgir viðauki með verkefnum, matsblöðum og gátlistum fyrir kennara.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kápa.pdf | 98.39 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Lokaverkefni (1).pdf | 1.94 MB | Lokaður | Heildartexti | ||
Viðauki.pdf | 1.54 MB | Lokaður | Viðauki |