is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9698

Titill: 
  • Skaðsemisábyrgð á Íslandi og Danmörku : bótaábyrgð framleiðenda og dreifingaraðila
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eins og titill ritgerðarinnar gefur til kynna fjallar hún um Skaðsemisábyrgð en þó aðallega bótagrundvöll framleiðanda og dreifingaraðila. Evrópubandalagið gaf út tilskipun árið 1985 til aðildarríkja um samræmingu á lögum um skaðsemisábyrgð. Ísland hvorki var né er aðildarríki að Evrópubandalaginu og var því leitað til Danmerkur varðandi lagasetningu um skaðsemisábyrgð.. Lögin í Danmörku tóku gildi árið 1989, íslensku lögin tóku gildi 1.jan árið 1992. Lögin um skaðsemisábyrgð á Íslandi eru nr. 25/1991. En hvernig var eldri réttur ? Áður en lögin á Íslandi tóku gildi þá voru engin lög sem beinlínis tóku á þeim tjónum sem vörðuðu hættulega eiginleika á söluvörum. Þá var gripið til þess að beita Kauplögunum til að ná fram niðurstöðu, og þótti oft á tíðum erfitt. Dómstólar áttu að vera fordæmisgefandi en það var í raun ekki nægjanlegt því niðurstöður voru settar fram án rökstuðnings. Óvissan var því mikil. Farið verður almennt yfir skaðsemisábyrgð bæði óháð lögum og öfugt, tekin verða fyrir helstu álitaefni sem varða skaðsemisábyrgð á Íslandi. Síðar verður tekinn samanburður á 6. og 10. gr. íslensku og dönsku laganna. Dönsku lögin hafa gengið í gegnum breytingar og var 10. gr. sem fjallar um bótaábyrgð dreifingaraðila breytt árið 2006 í kjölfar máls sem danski landsrétturinn sendi EB dómstólnum til forúrskurðar. Með breytingunni eru Danir með mun skýrari 10. gr. en áður var. Af hverju hafa Íslendingar ekki fylgt Dönum í þessari lagasetningu ? Núna er Ísland aðili að EES samningum og verður Evrópuréttur tekinn fyrir með hliðsjón af bókun 35 sem kom með samningnum, hvort þjóðarréttur skuli ganga framar landsrétti við þær aðstæður sem kunna að koma upp. Í lokin er svo stutt samantekt um ritgerðina og niðurstöður hennar ræddar.

  • Útdráttur er á ensku

    As the title of the essay indicates, it focuses on product liability, primarily benefit the foundation manufacturer and distributor bottoms party. The European Community issued a Directive in 1985 to member states on harmonization of laws on product liability. Iceland was and is not a member state at the time and they looked to Denmark regarding legislation on product liability. The law took effect in Denmark in 1989; the Icelandic law took effect in 1992 1.jan. The law on product liability in Iceland are no. 25/1991. But how was it before the legislation? Before the law took effect in Iceland, there were no laws that directly took on the claims concerning dangerous products on sale characteristics. At this time the Purchase Communities was used to achieve results, but it was often difficult. The courts were supposed to give precedents but it really was not possible because the results were presented without justification. Uncertainty was high.
    The essay will generally be about the product liability independently and vice versa, the major issues of the product liability in Iceland will be reviewed. Two articles will be inspected and comparison will be made, that is the 6th and Article 10 in Icelandic and Danish laws. The Danish law have gone through a change and Article 10.which deals with liability distributor was changed in 2006 after a case that the Danish national court sent the EC Court prior ruling. After the change the 10th article in the Danish law is much clearer than previously. Why did Iceland not follow the Danes in this legislation? Now Iceland is a member of the EEA agreement and EU will be taken and reviewed with regard to protocol 35, which follows the agreement, whether international law should take precedence over national law in circumstances that may arise. In the end there is a brief summary of the thesis and its results discussed.

Samþykkt: 
  • 4.7.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9698


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Skaðsemisábyrgð á Íslandi og Danmörku.pdf557.51 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna