Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9702
Ritgerð þessi er lögð fram til fullnustu B.Ed gráðu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar er viðhorf til dönskunáms, -kennslu og kennsluaðferða. Komið er inn á sögu dönskukennslunnar á Íslandi, þróun tungumáls, máltöku, máltileinkunarferlið. Þá er fjallað um færniþættina fjóra en mikilvægt er að samtvinna þá í tungumálakennslu. Komið er inn á þróun kennsluaðferða í gegnum tíðina. Bent er á mikilvægi tjáskiptamiðað náms til að virkja munnlega færni nemenda í tungumálanámi.
Að lokum verða niðurstöður kynntar úr könnun sem gerð var á viðhorfi nemenda í efstu bekkjum þriggja grunnskóla í Kópavogi til dönskunáms, -kennslu og kennsluaðferða.
Niðurstöður benda til nemendur í efstu bekkjum grunnskólans telji ekki mikilvægt að kunna dönsku en viljinn er fyrir hendi að verða fær um að lesa, skrifa, tala og hlusta á dönsku
Við gerð ritgerðarinnar hef fengið leiðsögn hjá Michael Dal, lektor og vil ég þakka honum fyrir veittar upplýsingar og leiðbeiningu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð Tóta.pdf | 832.14 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
SnidmatMVS_Kapa-A4_vormisseri2011[2].pdf | 30.65 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
SnidmatMVS-Titilsida-A4_Vormisseri2011.pdf | 71.4 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |