Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9711
Þessi greinargerð ásamt meðfylgjandi kennsluefni er lokaverkefni til B.Ed. prófs. Tilgangur kennsluefnisins er að fræða elstu börn leikskóla og yngstu börn grunnskóla um býflugur og hlutverk þeirra í fjölgun túnfífla. Kennsluefnið er byggt á markmiðum aðalnámskrá leikskóla og aðalnámskrá grunnskóla og inniheldur söguna um Smjöttu býflugu og túnfíflana, tvær stórar brúður, segultöflu og litlar brúður sem festast á segultöfluna.
Sagan um Smjöttu býflugu og túnfíflana byggist á hugmyndafræði Jean Piaget og Lev S. Vygotsky og kenningum þeirra um nám og þroska barna. Hverjum hluta sögunnar fylgja spurningar sem flokkaðar eru eftir hugmyndafræði Benjamin Bloom‘s og samstarfsmanna hans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 643.79 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Kennsluefni.pdf | 20.38 MB | Opinn | Kennsluefni | Skoða/Opna | |
Myndir af fylgihlutum.pdf | 292.79 kB | Opinn | Fylgihlutir kennsluefnis | Skoða/Opna |