is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9770

Titill: 
  • Fyrirkomulag gengismála : framtíðarmöguleikar Íslands
  • The exchange rate regime : future possibilities for Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis var að kanna þá möguleika sem Ísland hefur í gengismálum og leitast var við að svara rannsóknarspurningunni:
    Hverjir eru framtíðarmöguleikar Íslands í gengis og gjaldeyrismálum og hvaða leið er ákjósanlegust til þess að geta viðhaldið stöðugleika hér á landi?
    Seðlabanki Íslands gerði veigamikla breytingu á peningamálastefnu Íslands árið 2001, þegar horfið var frá fastgengisstefnu með stöðugu gengi og tekið var upp verðbólgumarkmið. Markmið peningamálastefnunnar er stöðugt verðlag sem er skilgreint þannig að árleg verðbólga, sem er reiknuð með hækkun vísitölu neysluverðs, verði að jafnaði sem næst verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Það þýðir að 12 mánaða verðbólga hér á landi verði sem næst 2,5%. Þegar árangur peningamálastefnunnar er skoðaður er augljóst að afar illa hefur tekist til. Á þessu 120 mánaða tímabili hefur verðbólgan aðeins verið undir þessum markmiðum í samtals 20 mánuði. Verðbólgan hefur því verið yfir mörkunum í 100 mánuði eða í rúmlega 83% þess tíma sem verðbólgumarkmiðið hefur verið við lýði. Nokkrar leiðir eru færar sem framtíðarmöguleikar í gengismálum fyrir Ísland, en í raun eru aðeins tveir kostir raunhæfir. Annað hvort sá að halda núverandi peningamálastefnu og þá íslensku krónunni eða að ganga inn í Evrópusambandið og taka upp evruna í gegnum Efnahags- og myntbandalag Evrópu.
    Núverandi peningamálastefna hefur ekki þann trúverðugleika sem þarf að vera og er hagkerfinu sem og krónunni haldið í fjötrum gjaldeyrishafta og mun svo líklega verða áfram í einhvern tíma. Að mati höfundar er ákjósanlegasti kosturinn sá að Ísland afsali sér sjálfstæði í peningamálum og gerist aðili að EMU með inngöngu í ESB. Aðeins þannig næst sá stöðugleiki í efnahagsmálum sem nauðsynlegur er og þá er hægt að byggja upp betra Ísland með minni óvissu, öllum til hagsbóta.

Samþykkt: 
  • 28.7.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9770


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fyrirkomulag gengismála framtíðarmöguleikar Íslands-Árni Húnfjörð Brynjarsson.pdf895.85 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna