is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9913

Titill: 
  • Sagt án orða : óhefðbundnar tjáskiptaleiðir og notagildi þeirra í leikskólastarfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eru lausnir fyrir þá sem ekki geta tjáð sig með mæltu máli. Tákn með tali er þeirra algengust hér á landi. Leiðirnar skiptast í þrennt: Ein byggir á hreyfingum, önnur á myndum og þriðja á hlutum. Beiting þeirra er samsvarandi ólík. Í þessari ritgerð rek ég samræður mínar við fjóra leikskólakennara, sem telja þessar tjáskiptaleiðir þýðingarmiklar í starfinu og hafi mikil áhrif á sambandið við þau börn sem þeirra eru aðnjótandi. Af vitnisburði þessara kennara dreg ég þá ályktun að gera ætti óhefðbundnum tjáskiptaleiðum hærra undir höfði í námi þeirra en nú er gert. Leikskólar mættu einnig leggja meiri áherslu á óhefðbundin tjáskipti í skólastarfinu og með því að stuðla að menntun starfsmanna sinna í notkun þeirra. En eins og margt annað í þróun skólastarfs kostar það peninga og þar setur núverandi efnahagsástand sum staðar strik í reikninginn, því miður.

Samþykkt: 
  • 2.9.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9913


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sagt án orða - Óhefðbundar tjáskiptaleiðir og notagildi þeirra í leikskólastarfi.pdf549.83 kBLokaðurHeildartextiPDF