Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/993
Hér verður fjallað um skólamál nemenda með ADHD í grunnskólum. Farið er í gegnum núgildandi lög og reglugerðir sem koma að skólagöngu þessara nemenda. Fjallað er almennt um ADHD og kennslu nemenda með slíka greiningu. Lítil könnun var gerð á stöðu mála í grunnskólum í dag og er fjallað um niðurstöður hennar í ritgerðinni. Tekin voru viðtöl við þrjá skólastjóra um hvernig staðið er að málum í þeirra skólum. Einnig voru tekin viðtöl við foreldra tveggja drengja með ADHD um reynslu þeirra af skólakerfinu. Af svörum skólastjóranna má ráða að skortur á fjármagni er stærsta hindrunin í vegi fyrir því að hægt sé að vinna betur að málum barna með sérþarfir. Foreldrarnir voru sammála um að þekkingar- og skilningsleysi ríkti meðal kennara í grunnskólum um fötlun barna þeirra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 396.19 kB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna |