Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2394
Starfsánægja náms- og starfsráðgjafa í grunn- og framhaldsskólum: Áhrifaþættir og ávinningur
Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvort náms- og starfsráðgjafar í grunn- og framhaldsskólum á Íslandi eru ánægðir í starfi. Mælitæki og líkan Evrópsku starfsánægjuvísitölunar (EEI), sem greinir almenna stöðu starfsánægju og hvatningar ásamt hollustu og tryggð starfsmanna, var notað. Einnig eru í líkaninu metnir sjö áhrifaþættir starfsánægju og hvatningar. Svör fengust frá 89 náms- og starfsráðgjöfum í grunn- og framhaldsskólum landsins eða 75% af þeim 119 sem í starfi eru. Starfsánægja, áhrifaþættir hennar, hollusta og tryggð náms- og starfsráðgjafa var borin saman við Íslensku starfsánægjuvísitöluna en hún byggir á svörum ríflega 3.300 aðila í fjölbreyttum starfsstéttum. Náms- og starfsráðgjafar virðast almennt vera ánægðir í starfi og er starfsánægjuvísitala þeirra heldur hærri Íslenska starfsánægjuvísitalan. Ekki kom fram munur á starfsánægju þeirra sem starfa í grunn- og framhaldsskólum. Munur kemur þó fram á hollustu og tryggð náms- og starfsráðgjafa eftir skólastigum. Náms- og stafsráðgjafar í framhaldsskólum meta tryggð sína hærra en þeir sem starfa í grunnskólum, sem eru þá líklegri til að skipta um vinnustað en þeir sem starfa í framhaldsskólum. Þessi niðurstaða er áhyggjuefni en um leið sóknarfæri. Mikilvægt er að huga að því hvernig efla megi náms- og starfsráðgjafa almennt til frekari starfsþróunar en jafnframt að skoða starf og starfsskilyrði þeirra og þá ekki síst á grunnskólastigi.
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Bryndís jóna- MA-l... .pdf | 465KB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |