Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/4165

Tíðni hegðunarfrávika barna á leikskólaaldri: Notkun ASEBA, skimunar- og matslista fyrir börn á aldrinum 1½-5 ára
Sigríður Stephensen Pálsdóttir
Halldór Sig. Guðmundsson

Félagsráðgjöf

ASEBA

Snemmtæk íhlutun

Hegðunarfrávik

Rannsókninni er ætlað að varpa ljósi á mat foreldra og leikskólakennara á líðan
og hegðun 1½-5 ára barna á Íslandi með notkun ASEBA skimunar- og matslista.
Rannsóknin var megindleg og úrtakið lagskipt tilviljunarúrtak barna úr tíu
leikskólum víðsvegar af landinu. Gagnasafnið, sem unnið var með í þessari
rannsókn, innihélt 660 matslista frá foreldrum og frá leikskólakennurum varðandi
263 börn. Niðurstöðurnar byggja á greiningu fyrirliggjandi gagna úr nýrri
rannsókn sem framkvæmd var á haustmánuðum ársins 2009. Þar sem aldurinn
1½-5 ára spannar stórt þroskaskeið í lífi barna var ákveðið að skipta úrtakinu upp
í yngri aldurshóp (18-35 mánaða) og eldri aldurshóp (36-72 mánaða). Helstu
niðurstöður voru að 2,3% barna mælast yfir klínískum mörkum á
einbeitingarvanda og 3% sýna reiði, árásartengda hegðun yfir klínískum mörkum.
Athygli vakti að yngri aldurshópurinn mældist með meiri vanda á öllum þáttum
og gefa þessar niðurstöður tilefni til frekari athugana á hvort aldursskipta þurfi
úrvinnslu ASEBA matslistanna fyrir 1½-5 ára börn. Munur er á mati
upplýsingagjafanna og er sá munur breytilegur eftir einkennaþáttum. Þó virðist
sem kennarar meti vanda barnanna meiri en foreldrar gera. Við samanburð
flokkunarkerfanna ASEBA og DSM kom í ljós jákvæð fylgni á þáttum sem mæla
einbeitingarvanda og reiði, árásartengda hegðun. Á Íslandi er notast við
bandarísk viðmið skimunar- og matslistanna ASEBA og leiða niðurstöður
rannsóknarinnar í ljós að foreldrar og kennarar meta hegðunarfrávik íslenskra
barna meiri en sömu aðilar gera í bandarískum viðmiðunarhópi. Niðurstöður
rannsóknarinnar gefa því tilefni til frekari rannsókna á íslenskum viðmiðum
skimunarlista ASEBA fyrir 1½-5 ára börn.
Name![]() | Size![]() | Visibility![]() | Description![]() | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| prentunar_fixed.pdf | 1.46MB | Open | Complete Text | View/Open |