ÍslenskaenEnglish

Aðilar að Skemmunni

Leit eftir:


LokaverkefniHáskóli Íslands>Félagsvísindasvið>Meistaraprófsritgerðir>

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4513

Titill

Samkeppnishæfni Íslands í jarðvarma

Útdráttur

Íslensk stjórnvöld hafa í auknu mæli farið í samstarf við erlend stjórnvöld á sviði jarðvarma. Íslendingar hafa einnig sinnt fleirum útrásaraverkefnum á alþjóðlega jarðvarmamarkaðinum. Í þessari rannsókn er samkeppnishæfni Íslendinga í jarðvarma greind og hversu álitlegur alþjóðlegi jarðvarmamarkaðurinn sé. Kenningar Michael E. Porters um samkeppnishæfni þjóða (e. The Competitive advantage of Nations) og klasa (e. Cluster) voru notaðar til þess greina samkeppnishæfni Íslands; á hverju hún byggis; hvað sé í innviðum Íslendinga sem gerir þjóðinni kleift að nýta jarðvarmann eins mikið og hún gerir og hvernig Íslendingar geta viðhaldið samkeppnishæfni sinni? Fimm samkeppniskrafta (e. The Five competitive forces) kenning Porters var notuð til að greina hversu álitlegur alþjóðlegi jarðvarmamarkaðurinn væri fyrir Íslendinga; hvaða áhættur eru til staðar og hvaða tækifæri leynast í honum. Rannsóknin er raundæmisrannsókn og eigindlegar rannsóknaraðferðir voru notaðar. Tekin voru viðtöl við sérfræðinga sem tengjast jarðvarmanum og fyrirliggjandi gögn voru lesin. Demantur Íslands í jarðvarma og jarðvarmaklasinn voru greindur. Niðurstöðurnar sýndu að samkeppnishæfni Íslendinga er mikil. Jarðvarmaklasinn er rótgróinn inn í íslenskt samfélag. Alþjóðlegi jarðvarmamarkaðurinn er álitlegur fyrir íslenska ráðgjafa en ekki fjárfesta. Í honum felast áhættur og tækifæri. Í lok skýrslunar er bent á ýmsar leiðir fyrir Íslendinga til þess að viðhalda samkeppnishæfni sinni.

Birting
10.3.2010


Skrár
NafnRaðanlegtStærðRaðanlegtAðgangurRaðanlegtLýsingRaðanlegtSkráartegund
Samkeppnishæfn.pdf2,61MBLokaður Heildartexti PDF