
Akademískar deildir Háskólans í Reykjavík eru fjórar: Lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild.
Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag, lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.
Nemendur skólans eru um 3000 og starfa um 200 fastir starfsmenn við skólann auk fjölda stundakennara.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði.
Hér fyrir neðan getur þú leitað í öllum verkum þessa stofnunar.
Með því að smella á "Höfundur", "Efnisorð", "Titil" eða "Eftir dagsetningu" þá færðu lista yfir viðkomandi flokk hjá þessum skóla og getur þannig nálgast ritgerðir.
Þar fyrir neðan er hægt að slá inn texta til að leita í öllum verkum stofnunarinnar.