Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8142
Umdeild efni. Mannfræðileg úttekt á vímuefnum
Vímuefni hafa fylgt mannkyninu í þúsundir ára. Í ritgerðinni er leitast til við að skoða stöðu vímuefnarannsókna innan mannfræðinnar og í hvaða átt þær stefna. Út frá því er rýnt í þætti sem skipta máli fyrir félagslega og menningarlega nálgun en einnig komið inn á nálgun
raunvísindamanna sem og orðræðu samfélagsins. Ætlunin er að nálgast vímuefni sem hluta af neyslumenningu mannkynsins óháð siðferðislegum gildum. Sýnir ritgerðin þannig fram á að
þrátt fyrir landlæga vímefnafælni vesturlanda hafi aukin neysla þeirra á tuttugustu öldinni haft
gríðarleg áhrif á aðra menningarheima sem eiga oft að baki langa menningarbundna
neyslusögu á efnum sem hafa verið gerð ólögleg á seinustu áratugum. Mikilvægi félagslegrar
formgerðar og menningarlegra gilda er þannig skoðað í samhengi með þeim vandamálum sem
hafa í auknu mæli verið í forgrunni umræðunnar um vímuefni. Einnig er komið inn á
formgerð valds og hvernig valdhafar hafa oft notað vímuefna neyslu minnihlutahópa sem
afsökun til ofsókna og hefur slíkt jafnvel verið ráðandi í lagasetningum. Valdahafar hafa
einnig sett mannfræðingum skorður þegar kemur að styrkveitingum til vímuefnarannsókna og
þannig í raun mótað stefnu fræðigreinarinnar. Markmið ritgerðarinnar er ekki að vera tæmandi
heldur frekar innlegg inn á svið sem hefur að mörgu leiti verið vanrækt af mannfræðingum
þrátt fyrir mikilvægi þess fyrir menningu og félagslegt umhverfi samfélagsins.
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BA_Final_HMG.pdf | 492KB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |