Verk<Lokaverkefni - grunnskólabraut<X Kennaradeild 2002-2008<Háskólinn á Akureyri

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1333

Titill

Lok, lok á læsi : lesblinda og athugun á áhrifum Davis-aðferðarinnar í kennslustofunni

Höfundar
  • Katrín Møller Eiríksdóttir

  • Kristjana Halldórsdóttir

Leiðbeinandi

Kristín Aðalsteinsdóttir

Efnisorð
  • Grunnskólar

  • Lestrarörðugleikar

  • Kennsluaðferðir

  • Lesblinda

  • Davis-kerfið

Útgáfudagur
1.1.2004
Útdráttur

Þessi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á

Akureyri. Tilgangurinn var að leita fræðilegrar vitneskju um lesblindu ásamt því að

kynnast sérstaklega kenningu og aðferð Ronald D. Davis. Sagt verður frá athugun sem

höfundar gerðu á áhrifum Davis-aðferðarinnar í kennslustofunni.

Lesblinda hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár og vakið bæði almenning

og kennara til umhugsunar um þau áhrif sem hún kann að hafa á einstaklinga. Margar

hugmyndir um orsakir lesblindu hafa litið dagsins ljós en það hefur reynst

vísindamönnum erfitt að koma sér saman um skilgreiningu á henni og hefur það enn

ekki tekist. Sumir telja orsökina vera skemmd eða afbrigðilega starfsemi í heila á

meðan aðrir, þ.m.t. Davis, halda því fram að lesblindir hugsi öðruvísi, eða í myndum.

Hann kýs að líta á slíka hugsun sem hæfileika sem um leið veldur lesblindum

erfiðleikum við að tileinka sér lestur og skrift. Hugmyndafræði Davis er frábrugðin

því sem áður hefur verið sett fram og vakti það áhuga höfunda. Af þeirri ástæðu þótti

áhugavert að líta nánar á hana og verða henni gerð ítarleg skil í verkefninu. Einnig

verður fjallað um kenningar nokkurra annarra fræðimanna.

Greint verður frá niðurstöðum athugunarinnar sem gerð var meðal kennara sem

hafa fengið þjálfun í Davis-aðferðinni og beitt henni í kennslustofunni. Í ljós kom að

kennarar eru jákvæðir í garð aðferðarinnar, þeir telja hana hafa jákvæð áhrif á

einbeitingu nemenda, aga í kennslustofunni og námsárangur. Þar sem úrtakið var lítið

og aðferðin er svo ný af nálinni hérlendis ber þó að taka niðurstöður athugunarinnar

með ákveðnum fyrirvara og líta frekar á þær sem vísbendingar sem gefa tilefni til

frekari rannsókna.

Lýsing

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri

Skrár
NafnRaðanlegtStærðRaðanlegtAðgangurRaðanlegtLýsingRaðanlegtSkráartegund
Katrín og Kristjana_e.pdf124KBOpin Loklok - efnisyfirlit PDF Skoða/Opna
Katrín og Kristjana_h.pdf131KBOpin Loklok - heimildaskrá PDF Skoða/Opna
Katrín og Kristjan... .pdf1,57MBTakmarkaður Loklok - heild PDF  
lok-fs.pdf1,04MBTakmarkaður Loklok - fylgiskjöl PDF  
lok-u.pdf124KBOpin Loklok - útdráttur PDF Skoða/Opna

Aðilar að Skemmunni