Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14146
Verkefnið sem teymið vann að snérist um að hanna og útfæra lausn á forriti sem auðveldar stjórnanda að framkvæma og halda utan um notendaprófanir. Megin áhersla var lögð á að gera ferlið einfalt, fljótleg og ódýrt í framkvæmd.
Hugmynd verkefnisins var komin frá einum teymismeðlimi teymisins, Sonju Petru Stefánsdóttur. Hugmyndin kviknaði í áfanga sem hún tók á vorönn 2012 sem hét "Samskipti manns og tölvu" og var kenndur af leiðbeinanda teymisins, Mörtu K. Lárusdóttur. Í upphafi var hugmyndin sú að tvinna saman tóli frá MindGames sem les heilabylgjur sem fylgjast með einbeitingu notanda inn í verkefnið. Kannaði teymið þann möguleika en þegar kom í ljós að það gekk ekki upp kom upp sú hugmynd að starfa með sálfræðisviði Háskólans í Reykjavík og tengja blóðþrýstingsmæli við verkefnið. Í kjölfarið á því að hugmyndinni var vel tekið var hún útfærð nánar.
Þegar verkefnavinna hófst fékk teymið úthlutaða vinnuaðstöðu í rými meistaranámsnema við Háskólann í Reykjavík. Yfir verkefnistímann hittust teymismeðlimir í vinnuaðstöðunni 3-4 sinnum í viku og unnu að verkefninu saman.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskyrsla_Notendaprofanir.pdf | 1.85 MB | Lokaður til...31.12.2132 |