is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19970

Titill: 
  • Moskumálið 2013: Ótti og andúð gegn byggingu mosku
Útgáfa: 
  • Október 2014
Útdráttur: 
  • Efni erindis og greinar minnar er orðræðan sem átti sér stað í fjölmiðlum, bæði
    hefðbundnum og félagsmiðlum, um áætlaða moskubyggingu í Reykjavík á
    vegum Félags múslíma á Íslandi, en þetta mál braust fram á haustdögum 2013.
    Samfélag múslíma á Íslandi er fámennt og hefur að mestu verið lítið áberandi í
    opinberri umræðu þar til haustið 2013. Þá má segja að einskonar siðræn skelfing
    (moral panic) hafi gripið um sig og fór í gang heit umræða, með og á móti
    moskubyggingunni. Stofnaðar voru tvær facebook síður þar sem mjög lífleg
    orðaskipti áttu sér stað, auk töluverðs fjölda aðsendra blaðagreina. Allir virtust
    hafa miklar skoðanir á málinu og voru skoðanaskipti oft skörp og stundum á
    mörkum hatursorðræðu. Útlendingahatur, íslamófóbía og annað í þeim dúr gaus
    upp og átakalínur um hverjir væru velkomnir og hverjir ekki á Íslandi skýrðust.
    Fjölmenningarsinnar og þjóðernissinnar tókust á opinberlega. Það hafði verið
    moska í Reykjavík í mörg ár en þegar fréttin um að Borgin hefði útvegað lóð til
    moskubyggingar, varð „fjandinn laus“, ef svo má að orði komast. Ég mun gera
    grein fyrir orðræðunni sem fór í gang við þessar fréttir og bera saman við
    hliðstæður annars staðar á Vesturlöndum og ræða hugtakið siðræn skelfing.

Birtist í: 
  • Þjóðarspegillinn XV: Rannsóknir í félagsvísindum. Félags- og mannvísindadeild
ISBN: 
  • 978-9935-424-18-1
Samþykkt: 
  • 30.10.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19970


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Moskumálið 2013_Félags- og mannvísindadeild.pdf561.71 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna