is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21722

Titill: 
  • Landmótun og laus jarðlög við Fláajökul
  • Titill er á ensku Glacial geomorphology of Fláajökull, south-east Iceland: An active temperate glacier
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni verkefnisins er að kortleggja, lýsa og greina landmótun og laus jarðlög framan við Fláajökul, og kynnt er nýtt landmótunarkort af framlandi jökulsins. Kortið var unnið í ArcGIS 10 og byggir á loftmyndum frá 2006 og 1989, LiDAR gögnum frá 2010 og gervitunglamynd (Landsat 8) frá 2013, auk athugana á vettvangi. Landformin sem kortlögð eru mynduðust ýmist undir jökli, við jökuljaðar eða ofan á jökli auk þess sem sum voru mynduð af jökulám. Kortlögð landform og setmyndanir eru dæmigerð fyrir landmótunarumhverfi virks, tempraðs jökuls. Það sem gerir framland Fláajökuls frábrugðið öðrum nútíma jafngangsjöklum er lítill jökulöldusveipur fyrir framan jökuljaðarinn sem fyrst varð vart við seint á níunda áratugnum og hefur síðan komið betur og betur í ljós vegna hlutfallslega hraðrar hörfunar jökulsins á síðustu tveimur áratugum. Jökulmynduðu landformin fjærst jöklinum eru frá hámarki Litlu ísaldar seint á 19. öld og kortið gefur gott yfirlit yfir framgang og hop jökulsins og landslagsmyndanir af hans völdum síðan í byrjun 20. aldar. Mikið af jökulvatnaseti og landform sem myndast hafa undir jökli og við jökuljaðarinn, sérstaklega á vestri hluta framlandsins, ásamt sögulegum heimildum, bera vitni um erfiða baráttu heimamanna við að halda jökulvötnunum í farvegum sínum og koma í veg fyrir að þau flæddu yfir tún og heimalönd suður af jöklinum eftir að hann tók að hörfa seint á 19. öld.

  • Útdráttur er á ensku

    The main goal of this study was to map and describe landforms and sediments in front of Fláajökull, southeast Iceland. A new glacial geomorphological map of the Fláajökull forefield is presented. The map was made in ArcGIS 10 and is based on aerial photographs recorded in 2006 and 1989, LiDAR data recorded in 2010 and a satellite image (Landsat 8) from 2013, as well as ground-checking in the field. The mapped landforms were of subglacial, ice-marginal, supraglacial and glaciofluvial origin. They depict a typical active temperate glacier landsystem with a high glaciofluvial yield. What sets the Fláajökull forefield apart from most other modern non-surging outlet glaciers in Iceland is a small drumlin field in front of the present glacier snout. This drumlin field was first exposed in the late 1990‘s and has been increasingly exposed during the relatively rapid retreat over the past couple of decades. The landforms furthest away from the glacier were deposited during the glacier's Little Ice Age maximum position in the late 19th century and the map gives a good overview of the glacier's modern oscillations and landscape modification since the beginning of the 20th century. The large coverage of glaciofluvial landforms and the poorly preserved subglacial and ice-marginal landforms, especially on the western half of the forefield, along with historical documentation, bear witness to the struggle of local farmers to constrain the outwash streams and preventing them from migrating across the foreland, farmland and pastures south of the glacier during the glacial recession since the late 19th century.

Samþykkt: 
  • 29.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21722


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Landmótun og laus jarðlög við Fláajökul.pdf6.73 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna