is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2810

Titill: 
  • Í átt að jafnrétti: Þróun jafnréttislöggjafar á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er fjallað á heildstæðan hátt um þróun jafnréttislöggjafar á Íslandi frá árinu 1976-2009. Farið er yfir sögu jafnréttisbaráttunnar með það markmið að leiða lesandann í gegnum baráttu kvenna í íslensku samfélagi og þá þróun sem leiddi til setningar laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Fjallað er um þann árangur sem réttindabaráttan hefur borið á Íslandi og þær væntingar sem fylgja nýjum jafnréttislögum. Áhrif yfirstandandi efnahagskreppu á jafnréttisbaráttuna eru sérstaklega til umfjöllunar.
    Niðurstöður ritgerðarinnar leiða í ljós framfarir í jafnréttismálum á Íslandi á árunum 1976-2009. Lög um jöfn laun kynjanna hafa verið sett, kynjakvótar lögbundnir, launaleynd afnumin og sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar eða barnsburðar hefur verið lögfest ásamt ákvæðum um feðraorlof sem hafa aukið aðkomu feðra að heimilunum. Konur hafa nú rétt til fóstureyðingar og jafnrétti kvenna og karla í hjúskap er nú lögbundið. Bann hefur verið lagt við mismunun í starfi og ráðningu, kynbundið ofbeldi hefur verið viðurkennt sem jafnréttishindrun og jafnréttisáætlanir fyrirtækja og stofnana eru nú lögbundnar.
    Jafnréttisbaráttan hefur borið mikinn árangur en óréttlæti í garð kvenna er enn við lýði og má búast við því að yfirstandandi efnahagserfiðleikar setji strik í reikninginn. Markmið löggjafar á sviði jafnréttismála er að gera konur jafnvígar körlum á öllum vígstöðvum. Jafnréttislög hafa ekki borið tilætlaðan árangur undanfarin ár og má því ætla að slík löggjöf sé ekki fullnægjandi. Ef jafnrétti kynjanna skal náð í íslensku samfélagi þarf allsherjar hugarfarsbreyting að koma til hjá íslensku þjóðinni allri.

Samþykkt: 
  • 26.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2810


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
slandi_fixed.pdf496.15 kBLokaðurHeildartextiPDF