Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3323
Talið er að a.m.k. eitt af hverjum tíu pörum í heiminum þjást af ófrjósemi en ófrjósemi er
hnattrænt fyrirbæri sem birtist á misjafnan hátt innan samfélaga. Með tilkomu
tækninýjunga á sviði læknisfræði síðustu áratugi hafa tæknifrjóvganir hlotið almennan sess
sem gert hefur það að verkum að ófrjósemi er í dag ekki alitin félagslegt vandamál, heldur
samspil líkamlegra kvilla eða sjúkdómsástand. Markmiðið með þessari ritgerð er að skoða
ófrjósemi sem margbreytilegt líkamlegt, félagslegt og einstaklingsbundið ástand. Einnig
verður leitt hugann að því hvernig sjúkdómsvæðing ófrjósemi getur haft áhrif á þætti líkt
og kyngervi og sjálfsmynd fólks. Því til hliðsjónar verður litið á kenningar Foucault um
vald vísindanna til að skapa ráðandi þekkingar innan samfélaga, ásamt því að kenningar
ýmissa fræðimanna um líkamann verða skoðaðar. Þessu til viðbótar eru skoðaðar nokkrar
reynslusögur ófrjósamra einstaklinga á Íslandi til að varpa ljósi á upplifun þeirra.
Tæknifrjóvganir eru að vissu leyti birtingarmynd ráðandi sifjahugmynda innan
vestrænna ríkja, þar sem að blóðtengsl og erfðir ákvarða skyldleika. Á sama tíma hafa
tæknifrjóvganir áhrif á það hvernig við skiljum og endursköpum sifjahugmyndir okkar, t.d.
með tilkomu gjafaeggja, gjafasæðis og leiðumæðra. Tæknifrjóvganir geta haft víðtæk áhrif
á einstaklinga, bæði sálræn og líkamleg. Þær bera þó með sér von um barneignir fyrir þá
sem ekki geta átt börn á hefðbundinn hátt. Hjá sumum tekst meðferðin á meðan aðrir ganga
í gegnum langt sjúkdómsferli og þurfa svo að endurskoða framtíð sína út frá öðrum
úrræðum á borð við barnleysi eða ættleiðingu.
Helstu niðurstöður þessarar ritgerðar eru að einstaklingar bregðast mjög
misjafnlega við ófrjósemi, tæknifrjóvgunum og barnleysi en þó er ófrjósemi ástand sem
hefur gífurleg áhrif á líf fólks, sjálfsmynd og kyngervi. Á sama tíma hefur fólk þó ákveðið atbeini til að endurskilgreina aðstöðu sína og endurskapa hugmyndir sínar um hvað felst í því að eiga „eigið barn“.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Linda_Gudmundsd_forsida_fixed.pdf | 3.23 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Linda_Gudmundsd.pdf | 277.23 kB | Lokaður | Meginmál |