Verk<B.A./B.Ed./B.S. verkefni<Menntavísindasvið <Háskóli Íslands

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3958

Titill

Íþróttir fatlaðra : sund fólks með hreyfihömlun og aðgengismál

Höfundur

Vala Guðmundsdóttir

Leiðbeinandi

Kristín Björnsdóttir

Efnisorð
  • Þroskaþjálfafræði

  • Fatlaðir

  • Hreyfihömlun

  • Sund

  • Íþróttir fatlaðra

Útgáfudagur
7.10.2009
Útdráttur

Í þessari ritgerð sem er lokaritgerð við íþrótta-, tómstunda-, og þroskaþjálfadeild Háskóla Íslands er fjallað um íþróttir fatlaðra með áherslu á sund fólks með hreyfihömlun.

Fyrst er rakin saga fötlunarfræða með áherslu á breska félagslega líkanið og norrænu tengslanálgunina. Síðan er fjallað almennt um íþróttir fatlaðra bæði í heiminum og á Íslandi. Sundinu er gerð sérstök skil og í framhaldi af því er kafli um niðurstöður könnunar höfundar á aðgengi fólks með hreyfihömlun að sundstöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þá er einnig fjallað lítillega um félagsleg áhrif sundiðkunar á fólk með hreyfihömlun. Meðal annars er þar byggt á óformlegri könnun höfundar meðal iðkenda.

Í lokaorðum er áréttað að Íþróttasamband fatlaðra hefur vaxið mikið frá því það var stofnað og að staða mála í íþróttum fatlaðra hér á landi er býsna öflug í dag. Höfundur dregur þá ályktun að sundiðkun fólks með hreyfihömlun sé þjóðhagslega hagkvæm hvernig sem á það er litið.

Lykilorð: Íþróttir, fatlaðir, hreyfihömlun, sund, sundlaug, aðgengi

Skrár
NafnRaðanlegtStærðRaðanlegtAðgangurHækkandiLýsingRaðanlegtSkráartegund
Microsoft Word - V... .pdf255KBOpin Heildartexti PDF Skoða/Opna
Microsoft Word - kápa.pdf31,2KBOpin Kápa PDF Skoða/Opna

Aðilar að Skemmunni