Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5355
Verkefni það sem hér fer á eftir, og er unnið undir leiðsögn Guðna Elíssonar, skiptist í tvo hluta. Í fyrri hluta þess geri ég grein fyrir störfum mínum hjá Bókaútgáfunni Opnu, en þau störf voru hluti af meistaranámi mínu í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands. Stærsti hluti þessarar greinagerðar fjallar þó um listaverkabókina Blæbrigði vatnsins – Vatnslitir í íslenskri myndlist 1880-2009.
Í seinni hluta verkefnisins leitast ég við að gera leiðarvísi að gerð listaverkabóka fyrir ritstjóra og/eða útgefendur. Því til stuðnings eru viðtöl við einstaklinga sem hafa mikla reynslu í þessum efnum og eru meðal annars verðlaunahöfundar, ritstjórar og útgefendur fræði- og ljósmyndabóka. Farið er í gegnum ferlið frá hugmynd að bók. Skoðað hvað er mikilvægt við slíka útgáfu og hvað beri að varast.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA-lokaverkefni-Titilsíða.pdf | 130.4 kB | Lokaður | Titilsíða, forsíða | ||
MA-verkefni-Ritgerð.pdf | 723.34 kB | Lokaður | Meginmál |