is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6993

Titill: 
  • Ímynd tryggingafélaga á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um ímynd tryggingafélaga á Íslandi. Rannsakandanum er ekki kunnugt um að rannsóknir hafi verið gerðar á ímynd tryggingafélaga á Íslandi, fyrir utan mælingar Íslensku ánægjuvogarinnar.
    Núverandi efnahagsástand er án fordæma í sögu lands og þjóðar. Megin markmið rannsóknarinnar er að reyna að bregða ljósi á hvort núverandi aðstæður hafi haft áhrif á ímynd stærstu tryggingafélaganna á markaðinum, og þá einkum í ljósi þeirrar neikvæðu umfjöllunar sem hefur verið um eignarhald stærstu tryggingafélaganna.
    Rannsóknarspurningin sem sett er fram:
    Tengjast tryggingafélög sem fjallað hefur verið mikið um í fjölmiðlum vegna eignarhalds þeirra, spillingu í hugum neytenda?
    Rannsakandinn notaðist við megindlega aðferðafræði. Fimmtán staðhæfingar neikvæðar og jákvæðar voru settar fram til að meta ímynd tryggingafélaga í hugum þátttakenda.
    Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar á vörukorti. Aðeins eitt af þeim fjórum tryggingafélögum sem rannsökuð voru tengist sterkt spillingu í hugum þátttakenda. Niðurstöðurnar benda til þess að tryggingarfélögunum hafi ekki farist sérstaklega vel úr hendi að staðfæra sig í hugum neytenda, fyrir utan eitt. Þá benda niðurstöður einnig til þess að þrátt fyrir neikvæða umfjöllun um tryggingafélög séu aðeins 16% þátttakenda líklegir eða mjög líklegir til þess að skipta um tryggingafélög á næstu mánuðum.

Samþykkt: 
  • 6.12.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6993


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Forsíða.pdf21.01 kBOpinnTitilsíðaPDFSkoða/Opna
Lokaverkefni.pdf363.48 kBOpinnPDFSkoða/Opna
Viðauki1.pdf41.84 kBOpinnPDFSkoða/Opna
spurningalisti2.pdf232.7 kBOpinnPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf16.77 kBOpinnPDFSkoða/Opna