Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7091
Ísland ber ábyrgð á stórum hluta heimsstofna tíu vaðfuglategunda. Nokkrar þessara tegunda eru algengir mófuglar um allt land. Vegna aðkallandi vöktunar á algengum mófuglum á Íslandi er mikilvægt að talningar gefi sem nákvæmast mat á hámarksfjölda fugla. Með þessari rannsókn var breytileiki í sumar- og dægursveiflu í sýnileika algengra mófugla mældur í fyrsta sinn á Íslandi. Þetta var gert til þess að varpa ljósi á hvenær best er að telja með því
markmiði að flestar tegundir verði taldar á tíma hámarks sýnileika. Aðferðir sem notaðar voru við talningarnar voru tvær, heildartalning á ákveðnu svæði til að greina sumarsveiflu og
punkttalning á þremur föstum punktum til að greina dægursveiflu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS Lokaritgerd BD.pdf | 1.13 MB | Opinn | Skoða/Opna |