is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Lokaverkefni í lagadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10015

Titill: 
  • Réttur fatlaðra til menntunar : hvaða jákvæðu skyldur hvíla á ríkisvaldinu til að tryggja þann rétt?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð mun höfundur leitast við að kanna hvernig réttur fatlaðra til menntunar er verndaður í íslenskum rétti og hvort mismunur á grundvelli fötlunar eigi sér stað. Í upphafi er fjallað um hugtakið fötlun og vernd réttarins samkvæmt stjórnarskránni og lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992. Einnig er fjallað um vernd réttarins til menntunar í mannréttindasamningum sem Ísland er aðili að, og vikið að alþjóðasamningum sem geta haft áhrif á rétt fatlaðra einstaklinga til menntunar. Litið verður til íslenskrar dómaframkvæmdar og tveir Hæstaréttardómar greindir er lúta að þessu málefni ásamt jákvæðum skyldum ríkisins. Að lokum verður reynt að varpa ljósi á íslenskan veruleika og draga ályktun um réttarstöðu þessa hóps hér á landi.

Samþykkt: 
  • 12.9.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10015


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS-ALMA ÝR INGÓLFSDÓTTIR.pdf338.05 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna