is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Lokaverkefni í lagadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10018

Titill: 
  • Dómaframkvæmd Evrópudómstólsins vegna tilfærslu félaga á milli aðildarríkja : er þörf á heildstæðri félagaréttarlöggjöf innan Evrópusambandsins?
  • Titill er á ensku Company‘s Cross-border Transfer of Registered Office in the EU
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eitt af stofnmarkmiðum Evrópusambandsins var að koma á fót sameiginlegu
    markaðssvæði aðildarríkja þess. Mikilvægur þáttur í virkni hins sameiginlega
    markaðssvæðis byggist á því að einstaklingar og fyrirtæki geti flutt auðveldlega á
    milli aðildarríkja sambandsins og stundað atvinnustarfsemi undir sameiginlegu
    regluverki. Sáttmálinn um starfshætti Evrópusambandsins veitir einstaklingum og
    fyrirtækjum rétt til að stofna til og starfrækja atvinnustarfsemi innan aðildarríkja
    sambandsins og er stofnsetningarréttur talinn vera eitt af grundvallarréttindum á innri
    markaði Evrópusambandsins.
    Á sviði evrópsks félagaréttar er heildstæðri löggjöf ekki til að dreifa og hefur það í för
    með sér að vandasamt er að flytja fyrirtæki á milli aðildarríkja, líkt og einstaklingar
    geta gert. Birtast vandkvæðin í framkvæmd flutninganna því í mörgum tilvikum er
    gerð sú krafa að fyrirtæki skuli slitið og stofnað á ný í því aðildarríki sem það kýs að
    flytja til. Slík framkvæmd getur verið bæði kostnaðarsöm, tímafrek og lagalega flókin.
    Þess utan er augljóst að þetta ástand brýtur í bága við markmið ESB um einsleitt
    markaðssvæði sem og stofnsetningarrétt fyrirtækja.
    Þessi ritgerð skýrir núverandi stöðu fyrirtækja innan aðildarríkja ESB með tilliti til
    möguleika þeirra á tilfærslu á milli aðildarríkja. Höfundi fannst áhugavert að reyna að
    varpa ljósi á þróun réttarsvið stofnsetningarréttar og leggja mat á það hvort þörf sé á
    heildstæðri félagaréttarlöggjöf innan Evrópusambandsins. Þá markast umfjöllun
    ritgerðarinnar af dómaframkvæmd Evrópudómstólsins á þessu sviði fram að nýjasta
    úrskurði hans, Cartesio dómnum.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð
Samþykkt: 
  • 12.9.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10018


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Halldór Þ. Þorsteinsson - BS Ritgerð Sumar 2011.pdf361.75 kBLokaðurHeildartextiPDF