is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1001

Titill: 
  • Innra markaðsstarf hótela á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta gerir grein fyrir ákveðinni hugmyndafræði, innri
    markaðssetningu (e. internal marketing), sem stjórnendur fyrirtækja
    geta nýtt sér
    við að hámarka afrakstur þeirrar fjárfestingar sem
    liggur í mannauð fyrirtækja.
    Viðfangsefnið er ferðaþjónusta og er
    hótelgeirinn tekinn til athugunar.
    Rannsóknarspurningin sem unnið er út frá er:
    „Hvers vegna ættu stjórnendur hótela að tileinka sér
    aðferðir innri markaðssetningar?”
    Í fræðilega hluta verkefnisins er reynt að sýna fram á af hverju svo
    ætti að vera. Spurningalisti var lagður fyrir 40 starfsmenn og 20
    stjórnendur þriggja og fjögurra stjörnu hótela á Íslandi með
    símakönnun til að reyna að fá fram hvort unnið sé eftir fræðunum.
    Fræðin eru síðan tengd við úrvinnslu gagnanna.
    Í heild sinni kemur rannsóknin vel út og má ætla að það sé að hluta
    til vegna nokkuð mikillar menntunar stjórnenda en einnig vegna
    stöðugleika og hás meðalstarfsaldurs þeirra hjá viðkomandi
    fyrirtæki.Vissulega komu fram atriði sem
    stjórnendur geta lagað
    enn frekar til þess,
    meðal annars,
    að bæta þjónustugæði útávið og
    stefna með því að bættum þjónustugæðum í atvinnugreininni.
    Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að stjórnendur þurfa að upplýsa
    starfsfólk
    betur um það sem er að gerast innan fyrirtækisins og þá er
    sérstaklega átt við auglýsinga- og kynningarmál. Einnig komu þættir
    eins og hrós, gagnrýni og leiðbeiningar stjórnenda ekki nógu vel út.
    Það sem kemur þó mest á óvart úr rannsókninni, miðað við hátt
    menntunarstig stjórnenda, er að of fáir stjórnendur líta á starfsmenn
    sína sem viðskiptavini eins og grundvallað er í fræðunum.
    Lykilorð:
    Innri markaðssetning, þjónusta, ferðaþjónusta, hótel, þjónustugæði.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1001


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
innramarkadss.pdf1.28 MBTakmarkaðurInnra markaðsstarf hótela á Íslandi - heildPDF
innramarkadss_e.pdf111.74 kBOpinnInnra markaðsstarf hótela á Íslandi - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
innramarkadss_h.pdf122.7 kBOpinnInnra markaðsstarf hótela á Íslandi - heimildaskráPDFSkoða/Opna
innramarkadss_u.pdf113.98 kBOpinnInnra markaðsstarf hótela á Íslandi - útdrátturPDFSkoða/Opna