is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10067

Titill: 
  • Kvennalistinn. „Saga mikilla átaka, saga sigra og ósigra, saga gleði og vonbrigða“
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður leitast við að svara þeirri spurningu hvort Kvennalistinn hafi, með framboði sínu til Alþingis og þingsetu í 16 ár, haft tilætluð áhrif, þá bæði á samfélagið og eins á fjölgun kvenna í stjórnmálum. Til að leita svara við þeirri spurningu verður hugmyndafræði Kvennalistans skoðuð og hvaða áhrif hugmyndafræðin hafði á þróun Kvennalistan og hvernig hún þróaðist í takt við vöxt hreyfingarinnar. Einnig verða þau málefni sem Kvennalistinn kom á dagskrá stjórnmálanna skoðuð og metið hvernig til tókst.
    Kvennalistinn var grasrótarhreyfing og verður farið yfir hvernig Kvennalistanum sem hreyfingu farnaðist í því umhverfi sem hann varð til í.
    Helstu niðurstöður eru þær að Kvennalistinn hafði mikil áhrif og greiddi meðal annars leið íslenskra kvenna inn á svið stjórnmálanna. Hinir rótgrónu stjórnmálaflokkar sem áður höfðu haft konur til málamynda á sínum framboðslistum tóku við sér og fljótlega var ljóst að án kvenna væri ekki hægt að sigra kosningar. Hugmyndafræði Kvennalistans sem gagnrýnd var fyrir mæðra- og eðlishyggju varð til í því umhverfi að nauðsynlegt var að berjast fyrir auknum réttindum kvenna innan kerfisins. Kvennalistinn var róttæk stjórnmálahreyfing sem hreyfði við samtímanum með tilvist sinni.

Samþykkt: 
  • 15.9.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10067


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Snidmati_BAritgerd_Kristin_E_Benediktsdottir.pdf636.25 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna