is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10076

Titill: 
  • Kynferðislegt ofbeldi á átakasvæðum: Orsakir, afleiðingar og úrræði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Kynferðislegt ofbeldi í stríðsátökum er útbreitt og umfangsmikið vandamál. Kynferðislegt ofbeldi hefur sett mark sitt á stríðsátök í hunduð ára, en það sem hefur þó breyst á síðustu árum er að átökin hafa færst frá vígvöllum yfir í hið borgaralega líf þar sem gerðar eru aðfarir að óbreyttum borgurum. Konur eru í auknum mæli orðnar skotmörk vopnaðra hópa, þar sem þeim er kerfisbundið nauðgað í pólitískum og hernaðarlegum tilgangi. Í þessari ritgerð er fjallað um orsakir kynferðislegs ofbeldis og hvernig hægt er að notast við ýmsar kenningar til að útskýra birtingarmyndir, umfang og afleiðingar kynferðislegs ofbeldis í stríðsátökum. Að auki er farið yfir helstu úrræði alþjóðasamfélagsins og hvort eða hvernig þau taka á rótum vandans. Sameinuðu þjóðirnar gegna lykilhlutverki í þessum efnum og hafa með ályktunum um konur, frið og öryggi sett ný viðmið fyrir alþjóðasamfélagið sem leggja grunninn að bættri stöðu kvenna á átakasvæðum. UN Women er sérstofnun innan Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, en stofnunin leggur sérstaka áherslu á útrýmingu kynferðislegs ofbeldis í stríðsátökum. Að lokum er vakin athygli á ábyrgð stjórnvalda í ríkjum þar sem kynferðislegt ofbeldi er látið viðgangast, en ef vilji stjórnvalda er ekki fyrir hendi reynist erfitt að ná ákjósanlegum árangri í þessari baráttu.

Samþykkt: 
  • 15.9.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10076


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Guðrún Ósk.pdf647.55 kBLokaðurHeildartextiPDF