is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10101

Titill: 
  • Einhliða upptaka gjaldmiðils
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftir íslenska efnahagshrunið árið 2008 hefur umræða um gengismál færst í aukanna. Ein tillaga sem hefur komið upp úr þessari umræðu er einhliða upptaka gjaldmiðils. Fjallað er um þær sjálfstæðu þjóðir sem búa við erlendan gjaldmiðil sem lögeyrir. Hér er um að ræða fjögur lönd: Panama, Ekvador, El Salvador og Svartfjallaland. Skoðuð eru gögn frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Heimsbankanum til að bera saman áðurnefnd lönd við nágrannaþjóðir sínar. Lagt er áhersla á hvernig ýmsar hagtölur þróast eftir því hvort ríki búi við sjálfstæða mynt eða erlendan gjaldmiðil. Löndin sem hafa einhliða tekið upp gjaldmiðil komu yfirleitt vel út úr samanburði við sambærileg lönd. Verðbólgan var í öllum tilvikum mjög lág, en þróun raungengisins, millilandaviðskipta, beinna erlendra fjárfestinga og vaxta var mismunandi.

Samþykkt: 
  • 19.9.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10101


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Einhlida_upptaka_gjaldmidils.pdf1.33 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna