is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10129

Titill: 
  • Lífsgæði með heilgóma. Veitir smelltur heilgómur í neðri gómi meiri lífsgæði en laus?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þetta verk er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í tannsmíði við Tannlæknadeild Háskóla Íslands. Gerð var rannsókn á tannlausum einstaklingum og megintilgangur hennar var að kanna upplifun og ánægju þeirra sem eru með impantastuddan heilgóm í neðri gómi og bera saman við hóp einstaklinga sem nota lausan heilgóm í neðri gómi. Markmiðið var að svara rannsóknarspurningunni: Veitir smelltur heilgómur í neðri gómi meiri lífsgæði en laus?
    Spurningalisti var lagður fyrir 60 einstaklinga í hentugleikaúrtaki sem allir voru með lausan heilgóm í efri gómi. Helmingur þeirra var með lausan heilgóm í neðri gómi og hinn helmingurinn með smelltan heilgóm í neðri gómi. Þátttakendur svöruðu spurningum sem meðal annars lutu að því hvenær þeir fyrst fengu laus tanngervi, hvernig þeir teldu virkni tanngervanna vera; við að borða, tala og syngja. Þátttakendur með lausan heilgóm í neðri gómi voru meðal annars spurðir að því hvort þeir hefðu heyrt af heilgómum studdum af implöntum og hvort þeir gætu hugsað sér slíka meðferð. Að lokum voru allir sem höfðu smelltan heilgóm í neðri gómi spurðir hvort það hafi verið þess virði að fara í gegnum þetta ferli og hvort þeir myndu mæla með því við vin.
    Í ljós kom verulegur munur á festu neðri heilgóms eftir því hvort hann var laus heilgómur eða implantastuddur. Stöðugleiki og virkni gómanna reyndist mun meiri hjá þeim sem nota smelltan heilgóm og tyggingargeta jókst til muna, sem kom ótvírætt fram í auknu sjálfstrausti og almennri ánægju.
    Af því má álykta að smelltur heilgómur auki festu neðri góms til muna í samanburði við lausan og auki þannig ánægju notenda, geri þeim kleift að neyta fjölbreyttari fæðutegunda, auki sjálfstraust þeirra og bæti þannig lífið.

  • Útdráttur er á ensku

    This essay is a final thesis for a B.Sc. degree in dental technology from the faculty of Odontology at the University of Iceland. A study was made on edentulous patients and the main purpose of the research was to explore the experience and satisfaction of edentulous patients with mandibular implant supported prostheses, and compare to a group of people with mandibular conventional dentures. The aim was to answer the research question: Does implant supported mandibular prostheses give more quality of life than conventional dentures?
    With convenience sampling a questionnaire was handed out to 60 people who all had maxillary conventional dentures. Half of the participants had mandibular conventional denture and the other half had mandibular implant supported prostheses. They answered questions such as: when did you first get complete dentures, how is the functionality by; eating, talking and singing. Participants with mandibular conventional dentures were asked if they had heard about implant supported dentures and if they could think of undergoing such a treatment. Finally all participants with mandibular implant supported prostheses were asked if this treatment was worth it and if they would recommend it to a friend.
    Results demonstrated a significant difference in retention between dentures with mandibular implant supported prostheses and conventional ones. Stability, function and chewing ability, in regard to the former mentioned dentures, increased and resulted in more confidence and general satisfaction.
    From the results it can be concluded that mandibular implant supported prostheses gives by far more retention compared to mandibular conventional prostheses and increases user satisfaction, making it easier for them to eat variated food, increasing self confidence and improving the quality of life.

Samþykkt: 
  • 20.9.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10129


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lífsgæði með heilgóma.pdf865.84 kBLokaðurHeildartextiPDF