Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10131
Bútasaumsmarkaðurinn erlendis hefur þróast mikið undanfarin ár, bútasaumsefni eru farin að verða eins og tískuvörur sem fylgja nýjustu straumum og stefnum á hverjum tíma. Mikil endurnýjun á sér stað og nýjar efnalínur streyma inn á markaðinn í hverjum mánuði.
Markmið þessarar ritgerðar er að athuga hvar möguleg tækifæri á íslenska bútasaumsmarkaðinum gætu legið, þ.e. finna þau svið þar sem verslanir eru ekki að uppfylla þarfir og væntingar viðskiptavina sinna. Í þeim tilgangi var framkvæmd rýnihóparannsókn og greining gerð á helstu samkeppnisaðilunum á markaðinum.
Niðurstaðan leiddi í ljós að mörg tækifæri eru til staðar á markaðinum sem gefa nýjum aðilum leið til að staðsetja sig á honum. Bútasaumsverslanir sem starfa á markaðinum í dag eru ekki að sinna þörfum viðskiptavina nægilega vel. Það þarf að bjóða upp á fjölbreyttara úrval efna, fríska upp á yfirbragð verslana og skipta reglulegar út sýnishornum. Hanna þarf ný námskeið að þörfum allra viðskiptavina, bæði nýrra og núverandi. Heimasíður og aðrir vefmiðlar þurfa að vera skilvirkari og ná betur til viðskiptavina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hvar liggja möguleg tækifæri á íslenska bútasaumsmarkaðinum.pdf | 1.42 MB | Lokaður | Heildartexti |