is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10178

Titill: 
  • Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja í mismunandi menningarheimum
  • Titill er á ensku Corporate social responsibility in different cultures
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis er að skoða hvort að munur er á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja í mismunandi heimshlutum og ef svo er, hvort að menning landa, trúarbrögð og efnahagur eigi hlut að máli.
    Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja í sjö heimshlutum var skoðuð frá CSR pýramída Carroll og í tengslum við eftirfarandi kenningar: klassísku kenningu CSR, kenninguna um sáttmála samfélagsins, hagsmunaaðilakenninguna, Corporate Citizenship og Corporate Social Performance. Viðmið og reglur samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja á borð við viðmiðunarreglur OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki, hnattrænt samkomulag Sameinuðu þjóðanna og fleiri voru einnig skoðuð. CSR var skoðuð í eftirfarandi heimshlutum: Afríku, Asíu, Mið-Austurlöndum, Rómönsku Ameríku, Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu.
    Tilvikarannsókn var beitt í þessari ritgerð og fyrirliggjandi heimildir voru notaðar, svo sem blaðagreinar, bækur og netheimildir.
    Niðurstaða rannsóknarinnar varð sú að áherslumunur er á skilgreiningu og framkvæmd samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja á milli heimshluta og spila menning, trúarbrögð og efnahagur þar stór hlutverk. Mikinn mun er að sjá á milli þróunarríkja og þróaðra ríkja en einnig má sjá mun á samfélagslegri ábyrgð innan þessara hópa.

Samþykkt: 
  • 4.10.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10178


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_Anna Jóna Baldursdóttir.pdf455.51 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna