is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1022

Titill: 
  • Efnahagsleg áhrif Héraðsskóga fyrir nálægar byggðir : lokaverkefni við Háskólann á Akureyri : unnið í samstarfi við Héraðsskóga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Héraðsskógar eru eitt hinna landshlutabundnu skógræktarverkefna og starfa samkvæmt lögum nr. 32/1991. Tilgangur verkefnisins er að styðja eigendur lögbýla í sveitarfélögunum Austur-Héraði, Norður-Héraði, Fellahreppi og Fljótsdalshreppi til skógræktar.
    Rannsóknin sem hér er lýst var gerð til að meta efnahagsleg áhrif Héraðsskóga fyrir þau sveitarfélög sem tilheyra verkefnissvæðinu. Leitast var við að greina hvort verkefnið hefði náð þeim markmiðum sem því eru sett í lögunum, að treysta byggð og efla atvinnulíf á Héraði.
    Til að meta umfang skógræktarinnar í hagkerfi Héraðs var unnið þjóðhagsuppgjör fyrir svæðið. Uppgjör þetta var unnið út frá aðferð framleiðsluuppgjörs sem er ein þriggja leiða til að meta framleiðslu hagkerfis. Samkvæmt uppgjörinu var verg landsframleiðsla svæðisins á árunum 1997 til 2000 4,5 til 5,5 miljarðar króna, sem er í fullu samræmi við hlut svæðisins í íbúafjölda landsins.
    Einnig var leitast við að greina svæðisbundin veltuáhrif þeirra fjármuna sem ríkið ver til verkefnisins. Til að meta þau áhrif var reiknaður margföldunarstuðull sem segir til um margfeldisáhrif þau sem aukin eftirspurn veldur. Þessi stuðull bendir til að á árunum 1997 til 2000 hafi framlög ríkisins árlega valdið 75 til 100 milljóna króna aukningu á vergri landsframleiðslu svæðisins, sé miðað við verðlag ársins 2000.
    Í samanburði Héraðssvæðisins og Dalasýslu kom fram að byggða- og atvinnuröskun hefur verið mun minni á Héraðssvæðinu. Fyrir því geta þó verið fleiri ástæður en skógræktin. Viðhorfskönnun sem gerð var árið 1998 bendir ótvírætt til að fjármagn sem rennur sem vinnulaun til þátttakenda í verkefninu hafi jákvæð jaðaráhrif. Draga má þá ályktun að möguleikinn á skógrækt sem tekjugjafa fyrir bændur á svæðinu dragi úr líkum á byggðaflótta. Því má segja að sem byggðaverkefni sé það að ná þeim markmiðum sem því eru sett.
    Lykilorð:
    Héraðsskógar, Fljótsdalshérað, Þjóðhagsreikningar, Efnahagsleg áhrif, Skógrækt.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2002
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1022


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
herskogr.pdf675.06 kBLokaðurEfnahagsleg áhrif Héraðsskóga fyrir nálægar byggðir - heildPDF
herskogr_e.pdf108.59 kBOpinnEfnahagsleg áhrif Héraðsskóga fyrir nálægar byggðir - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
herskogr_h.pdf113.46 kBOpinnEfnahagsleg áhrif Héraðsskóga fyrir nálægar byggðir - heimildaskráPDFSkoða/Opna
herskogr_u.pdf113.95 kBOpinnEfnahagsleg áhrif Héraðsskóga fyrir nálægar byggðir - útdrátturPDFSkoða/Opna