is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10313

Titill: 
  • Rödd nemenda og hlutdeild í skólastarfi : námskrá
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Verkefnið felst í að taka saman námskrá fyrir grunnskóla sem kallar eftir rödd nemenda og hlutdeild í skólastarfi.
    Rannsóknarspurningin er:
    • Hvað einkennir námskrá sem laðar fram rödd nemenda?
    Á grunni rannsókna og hugmynda um viðfangsefnið bý ég til skólanámskrá fyrir grunnskóla sem hvetur einstaklinga innan námssamfélagsins, ekki síst börn og ungmenni, til virkrar þátttöku í öllu skólastarfi. Skólanámskráin hefur siðferðilega skírskotun og á rætur sínar að rekja til jafnréttis-, mannréttinda- og lýðræðissjónarmiða og þess skilnings að menntun verði haldbærari og farsælli ef rödd nemenda og nærvera er virk. Vaxandi umræða er um gildi þess fyrir samfélagið að einstaklingar eigi kost á að láta sjónarmið sín í ljós varðandi málefni sem þá snerta. Þessi hugsun hefur einnig færst inn í skólanna með aukinni lýðræðisvitund og breyttum skilningi á tilveru barna og ungmenna. Þátttaka nemenda í ákvörðunum er varða skólastarf er oft bundin þáttum sem snerta umgjörð skólans en sjaldnar er leitað eftir sjónarmiðum nemenda þegar kemur að kjarna skólastarfs, námi og kennslu. Fyrir virkri aðkomu nemenda að málum sem snerta hagsmuni þeirra eru lagaleg, siðferðileg og hagnýt rök. Í verkefninu beini ég sjónum mínum að kjarna skólastarfs, það að menntast, og á hvern átt rödd nemenda getur lagt námi og kennslu lið, aukið gildi menntunar fyrir einstaklinginn og samfélagið. Ég varpa ljósi á stöðu barna og ungmenna fyrr og nú, skoða tengsl mannréttinda, lýðræðismenningar og menntaumbóta við rödd nemenda og hvernig mannréttinda- lýðræðis- og umbótahugsun getur stuðlað að athöfnum sem hvetja til sjálfræðis, sjálfbærni, gagnrýni, ábyrgðar, áhuga, umhyggju, sköpunar, betra vinnulags og framfara þeirra sem að málum koma og hagsmuna eiga að gæta. Það eru sjónarmið barna og ungmenna sem berast með rödd nemenda. Hún opnar ný sjónarhorn á hugsun, viðhorf og tilfinningar barna og ungmenna í daglegu lífi við nám og störf.

Samþykkt: 
  • 22.11.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10313


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
rodd nemenda og hlutdeild i skolastarfi.pdf836.73 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna