is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Meistaraverkefni í lagadeild (MA/ML) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10333

Titill: 
  • Eftirgjöf skulda og tekjuhugtak 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt : telst eftirgjöf skulda til skattskyldra tekna?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Umræður um skattlagningu eftirgjafar skulda hafa verið áberandi nú á síðustu árum og
    þá einna helst í tengslum við afleiðingar efnahagshrunsins á fjárhag manna og fyrirtækja.
    Gildandi tekjuskattslög nr. 90/2003 hafa að geyma undanþáguákvæði vegna
    skattlagningar eftirgjafar skulda en skattlagningarheimildina er að finna í tekjuhugtaki 7.
    gr. laganna. Ritgerð þessi fjallar um þær skattlagningarreglur sem í gildi eru varðandi
    eftirgjöf skulda, hvort eftirgjöf skulda teljist til skattskyldra tekna skv. tekjuhugtaki
    skattalaganna og hvernig sú niðurstaða samræmist framkvæmdinni í dönskum rétti.
    Helstu niðurstöður ritgerðarinnar er að til skattskyldra tekna telst eignaauki sem myndast
    vegna eftirgjafar skulda og gildir það jafnt um menn og lögaðila. Við mat á því hvort og
    hver fjárhæð eignaaukans er, og þá skattskyldra tekna, þá skal taka mið af gangvirði
    hinnar eftirgefnu kröfu á þeim tíma sem hún var gefin eftir. Sú niðurstaða í samræmi við
    eldri framkvæmd í dönskum rétti, en þá byggðist skattlagningin á svipuðu tekjuhugtaki
    og er að finna í núgildandi tekjuskattslögum nr. 90/2003. Í dag er skattlagningarheimild
    vegna eftirgjafar skulda í dönskum rétti að finna í sér ákvæði danskra laga og byggir því
    ekki á hinu almenna tekjuhugtaki líkur og áður fyrr. Ekki er slíkri skattlagningarheimild
    fyrir að fara í íslenskum rétti og byggist skattlagning eftirgjafar skulda því á tekjuhugtaki
    7. gr. tekjuskattslaganna.

Athugasemdir: 
  • Meginmál ritgerðar er lokað
Samþykkt: 
  • 6.12.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10333


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
aldis_olga_johannesdottir_eftirgjof_skulda_meginmal.pdf616.3 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
aldis_olga_efnisyfirlit.pdf88.72 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
aldis_olga_johannesdottir_eftirgjof_skulda_heimildaskra.pdf118.83 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna