is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10360

Titill: 
  • Skilgreiningar- og flokkunarkerfi í barnavernd. Mat á flokkun tilkynninga hjá Barnavernd Reykjavíkur
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerðin fjallar um skilgreiningar- og flokkunarkerfi í barnavernd (SOF), uppruna þess, þróun, notkun og mikilvægi. Rannsóknin miðar að því að meta hvernig skilgreiningar- og flokkunarkerfið hentar daglegri vinnslu. Rétt skráning skiptir miklu máli varðandi tölfræði og samanburð milli landshluta og landa. Auk þess auðveldar gott flokkunarkerfi starfsmönnum barnaverndaryfirvalda vinnuna, gerir hana skilvirkari og veitir þar af leiðandi skjólstæðingum betri þjónustu með viðeigandi úrræðum. Barnaverndarstofa sér um úrvinnslu þeirra skráninga sem barnaverndarnefndir skila af sér. Rannsóknin felur í sér að meta flokkun barnaverndartilkynninga og greina hvort efni séu til endurskoðunar á skilgreiningar- og flokkunarkerfinu. Gerð var eigindleg innihaldsgreining á tilkynningum sem bárust á mánaðartímabili til Barnaverndar Reykjavíkur. Greindar voru 448 tilkynningar sem vörðuðu 355 börn. Í ljós kom að um 82% tilkynninga töldust rétt flokkaðar en aðrar tilkynningar voru skráðar í ranga flokka eða lentu á gráu svæði. Rætt er um helstu þætti sem mætti taka til umhugsunar varðandi skilgreiningar- og flokkunarkerfið í barnavernd.

Samþykkt: 
  • 14.12.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10360


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
KristnyMA.pdf1.73 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna