is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10388

Titill: 
  • Dvöl barna í Kvennaathvarfinu. Starfsemi Kvennaathvarfsins með tilliti til barna, upplifun barna á dvöl sinni og óskir mæðra um þjónustu þeim til handa
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu á málefnum barna sem verða vitni að ofbeldi í nánum samböndum og hafa dvalið í Kvennaathvarfinu. Markmiðin skiptust í þrennt og var ætlað að gefa heildarsýn á það hvernig unnið er með börnum sem dvelja í Kvennaathvarfinu. Í fyrsta lagi var sjónum beint að upplifun barna á dvöl sinni í Kvennaathvarfi, í öðru lagi voru kannaðar óskir mæðra sem dvelja með börn sín í Kvennaathvarfi um þjónustu þeim til handa og í þriðja lagi var kannað hvernig unnið er með börnum í Kvennaathvarfinu. Við rannsóknina var megindlegum og eigindlegum rannsóknaraðferðum beitt. Spurningakönnun var lögð fyrir 11 mæður sem hafa dvalið í Kvennaathvarfinu með börn sín og tekin voru viðtöl við fimm starfskonur Kvennaathvarfsins og þrjú börn sem hafa dvalið þar með mæðrum sínum. Þátttakendur voru alls 19 talsins. Starfsemi Kvennaathvarfsins er mikilvæg fyrir öryggi barna sem hafa orðið vitni að ofbeldi í nánum samböndum en niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að börnum sem dvelja í Kvennaathvarfinu sé almennt veitt lítil sem engin þjónusta og að þörf sé á meiri þjónustu sem skipulögð er út frá þörfum þeirra. Niðurstöður sýna fram á að horfa þarf á málefni barna sem dvelja í Kvennaathvarfinu með heildstæðari hætti en gert er og að mikilvægt sé að koma á samstarfi á milli Kvennaathvarfsins og viðeigandi stofnana um málefni þeirra.
    Lykilorð: kvennaathvörf, börn sem verða vitni að ofbeldi í nánum samböndum og barnavernd.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this study was to increase knowledge on children that are exposed to domestic violence and their stay in Kvennaathvarfið, the shelter for battered women in Iceland. Using both qualitative and quantitative research methods, this study’s objective is divided into three parts. Firstly the experiences of children who stayed at the shelter were analysed. Secondly, the mother’s desire for her children to be counselled during their stay was measured. Finally, the shelter’s counsellors’ methodology and approach were examined. There were a total of nineteen participants in this study. Qualitative interviews were conducted with five shelter workers and three children. Furthermore, eleven mothers who stayed at the shelter with their children agreed to complete a questionnaire. The safety and support of children exposed to domestic violence is of paramount importance. This study’s results indicate that children who stay in this shelter are not provided with sufficient and appropriate support. The results indicate that it is important to address the issues of children in the shelter in a more comprehensive manner and in cooperation with other relevant agencies.
    Key words: shelters for battered women, children exposed to domestic violence, child protection.

Samþykkt: 
  • 19.12.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10388


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaskjal.pdf1.58 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna